Motif Auglýsingavörur

Um Motif

Sala í magni til fyrirtækja og félagasamtaka

Fyrirtækið Motif selur auglýsinga og gjafavörur til fyrirtækja í magni.
Við leggjum okkur fram um að veita góða þjónustu og góðar vörur.
Við leggjum metnað í að merkingar séu vel heppnaðar.

Eigandi Motifs er Guðrún Anna Magnúsdóttir grafískur hönnuður
Kennitala Motifs er 481106-1840

vörur frá xindao

Umsagnir viðskiptavina

Fyrir hönd Skerpu - stéttarfélags / Ómissandi fólk á bak við tjöldin í menningargeiranum langar mig að þakka Guðrúnu Önnu og Birnu í Motif fyrir framúrskarandi þjónustu á alla vegu og góðar móttökur. Við í Skerpu gerðum nafnabreytingu á félaginu okkar vegna sameiningar og okkur langaði að kynna nýja nafnið með merktum gjöfum til félagsmanna. Motif varð fyrir valinu þar sem þjónustan var einstök sem lá í því að hægt var að heimsækja Motif og skoða vörurnar sem þær hafa uppá að bjóða áður en ákveðið er að panta. Allt milli himins og jarðar er í boði hjá þeim og fyrir valinu voru vörur sem nýtast okkar fólki á bak við tjöldin. Höfuðljós, hettupeysur, símahulstur, hleðslugræjur, hleðslubankar, húfur carabínubollar og sitthvað fleira varð fyrir valinu. Eftirtektavert eru gæði varanna sem við vorum einstaklega ánægð með og eins hversu mikið var hægt að velja úr gæða vörum. Mikil ánægja er á meðal okkar fólks með gjafirnar og kunnum við í stjórn Skerpu þeim mestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf. Upphafið af einhverju vel heppnuðu til framtíðar. F.h. Skerpu

Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Skerpa
Við þurftum að fylla á lagerinn okkar og láta gera eitthvað skemmtilegt á 90 ára afmælisári SSF. Starfsmenn Motif komu með margar skemmtilegar og flottar tillögur sem sumar voru hannaðar af þeim.  Öll samskipti og þjónusta til fyrirmyndar og afgreitt hratt og örugglega. Ekkert ves!“
Margrét Bragadóttir
SSF, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja

Við hjá Verksýn höfum verið í viðskiptum við Motif í uþb. 10 ár. Höfum alltaf fengið flotta þjónustu og smart lausnir á okkar óskum. Við mælum með Guðrúnu Önnu og þeim hjá Motif varðandi markaðs- og auglýsingavörur af öllu tagi.

Helga Kr. Hauksdóttir
Verksýn ehf
Við hjá Visku höfum góða reynslu af viðskiptum við Motif, gæði þeirra vara sem þau bjóða upp á eru góð og auk þess býður Motif upp á persónulega og hraða þjónustu.
Gauti Skúlason
Samskipti og markaðsmál, Viska stéttarfélag
Sinnum heimaþjónusta hefur átt viðskipti við Motif frá 2023 vegna kaupa á fallegu og endingargóðu auglýsinga- og gjafavörunum þeirra. Þjónusta Motif er traust, fagleg og persónuleg.

Ragnheiður Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri Sinnum

Menu

Exit mobile version