Category: Comments
Margnota vatnsflaska Motif auglýsingavörur

Motif auglýsingavörur. Hér er það sem þig vantar

Motif selur margskonar vörur til notkunar í kynningarskyni eða til fjáröflunar. Flest fyrirtæki nota auglýsingavörur til að koma merki sínu á framfæri og auka velvild í garð fyrirtækissins með því að gefa merkta hluti. Eða þau kaupa hluti til að gleðja starfsmenn sína eftir erfiða törn eða í tilefni flutninga. Skólar kaupa einnig oft vörur fyrir nemendur svo sem vatnsflöskur eða barmmerki sem eru merkt skólanum.

Misjafnt er eftir árstíðum hvaða vörur eru vinsælastar. Á sumrin er salan mest í derhúfum, buffum og öllu ferðalagatengdu en þegar haustar tekur eykst salan í skrifstofuvörum, bollum, pennum og vatnsbrúsum. Merktir postit miðar og pappírskubbar eru líka hlutir sem margir vilja.

Fyrir jólin kaupa mörg fyrirtæki starfsmannagjafir svo sem mjúk teppi, hitabolla, brúsa eða kaffiglös. Ostabakkar og vörur tengdar víni eru líka vinsælar.

Við hjá Motif leggjum okkur fram um að útvega fyrirtækjum og félagasamtökum góðar sérmerktar vörur og passa að merkingar komi vel út.

Motif auglýsingavörur. Um sérmerktar vörur. Auglýsingavörur eru áhrifamikil leið til að kynna vörumerkið þitt með hagkvæmum hætti og festa það í sessi í huga fólks. Því oftar sem þú sérð vörumerkinu bregða fyrir þeim mun betur manstu eftir því. Erlendar rannsóknir sýna að 83% þeirra sem fá gjafir merktar tilteknu fyrirtæki eru liklegri til að skipta við fyrirtækið í framhaldi. Merktar vörur lifa lengur en margt annað auglýsingaefni . Fólk notar merkta poka, penna og drykkjarbrúsa í marga mánuði.
Commenting: OFF