Tag: sérmerktar markaðsvörur.

Hvernig virka auglýsingavörur?

Merktar auglýsingavörur eru góð leið til að kynna vörumerki með ódýrum hætti og festa það í hugum fólks. Því meira sem þú sérð ákveðnu vörumerkinu bregða fyrir því betur manstu eftir því.

Með því að nota hlut með áprentuðu vörumerki tengist notandinn vörumerkinu einnig á persónulegri hátt og vörumerkið verður honum eftirminnilegra.

Ekki spillir fyrir að flestum finnst gaman að fá merktar gjafir sérstaklega ef gjafirnar eru gagnlegar eða sérlega eftir-minnilegar. Kaffikrúsir, pennar og minnismiðar eru dæmi um hluti sem fólk getur notað í vinnunni og hálsklútar, húfur og hitabrúsar eru upplagðir í útivistina.

Merktir hlutir eru auglýsingar sem lifa lengi og fara oft víða. Auglýsingavörur sem eru gefnar sameina það að gleðja viðskiptavini og auglýsa í leiðinni tiltekið vörumerki. Þessi kynningarleið eykur án nokkurs vafa velvild til fyrirtækissins sem gefur vörurnar.

Samkvæmt erlendum rannsóknum PPAI ( alþjóðleg samtök auglýsingavörugeirans ) eru 85% þeirra sem fá gjafir merktar tilteknu fyrirtæki liklegri til að skipta við fyrirtækið í framhaldi. 83% neytenda vill gjarnan fá merkta vöru að gjöf og 41% nota merktu gjafirnar frá einu og upp í fjögur ár.

Auglýsingavörur má líka nota til fjáröflunar. Félagasamtök af ýmsu tagi kaupa þá derhúfur, barmmerki, klúta eða annað sem þau láta okkur merkja snyrtilega og selja svo til fjáröflunar.

Hjá Motif er mikið úrval af auglýsingavörum
Endilega sendu fyrirspurn um vöru sem þér líst á og við svörum fljótt.

Sýnileiki skilar árangri

Hér er linkur á viðtal hjá visi.is árið 2021

https://www.visir.is/g/20212070058d

Efni í hnotskurn: Motif flytur inn úrval af vörum sem fyrirtæki og félög geta fengið sérmerkt með lógói. Eigandinn Guðrún Anna sem er grafískur hönnuður útfærir merkingar og munstur sé þess óskað. Merktar vatnsflöskur og höfuð/hálsklútar eru t.d mjög vinsælar gjafir til starfsmanna og viðskiptavina að sögn Guðrúnar.

„Rannsóknir erlendis sýna að 83 % neytenda vilja gjarnan fá merktar vörur að gjöf og 41% fólks sem fær merktar gjafir notar hlutinn í 1 til 4 ár. Merktar gjafir auka einnig velvild til viðkomandi fyrirtækis því fólki finnst gaman að fá eitthvað gefins og er því líklegra til að skipta við fyrirtækið í framtíðinni. Auglýsingavörur eru langtíma markaðssetning.“

Margnota vatnsflaska Motif auglýsingavörur

Motif auglýsingavörur. Hér er það sem þig vantar

Motif selur margskonar vörur til notkunar í kynningarskyni eða til fjáröflunar. Flest fyrirtæki nota auglýsingavörur til að koma merki sínu á framfæri og auka velvild í garð fyrirtækissins með því að gefa merkta hluti. Eða þau kaupa hluti til að gleðja starfsmenn sína eftir erfiða törn eða í tilefni flutninga. Skólar kaupa einnig oft vörur fyrir nemendur svo sem vatnsflöskur eða barmmerki sem eru merkt skólanum.

Misjafnt er eftir árstíðum hvaða vörur eru vinsælastar. Á sumrin er salan mest í derhúfum, buffum og öllu ferðalagatengdu en þegar haustar tekur eykst salan í skrifstofuvörum, bollum, pennum og vatnsbrúsum. Merktir postit miðar og pappírskubbar eru líka hlutir sem margir vilja.

Fyrir jólin kaupa mörg fyrirtæki starfsmannagjafir svo sem mjúk teppi, hitabolla, brúsa eða kaffiglös. Ostabakkar og vörur tengdar víni eru líka vinsælar.

Við hjá Motif leggjum okkur fram um að útvega fyrirtækjum og félagasamtökum góðar sérmerktar vörur og passa að merkingar komi vel út.

Vatnsflöskur, heitt og kallt

Motif auglýsingavörur. Vatnsflöskur eru málið í dag

Vatnsföskur einfaldar eða tvöfaldar eru málið í dag. Vatnsflöskur sem halda heitu og köldu eru tilvaldar í ferðalög eða til að tryggja að þú hafir kaldan eða heitan drykk við hendina á skrifstofunni.

Flöskurnar eru einnig tilvaldar í ræktina. Við eigum allskonar tegundir og liti af vatnsbrúsum. Sjáið t.d. https://motif.is/product/drykkjarflaska-baedi-fyrir-heitt-og-kalt-fc5694/

Motif auglýsingavörur. Auglýsingavörur gera gagn

Merktar kynningarvörur eru nauðsynlegur þáttur í markaðssetningu fyrirtækja. Sérmerktar auglýsingavörur gagnast vel til að auka sýnileika fyrirtækisins.

Fólk notar merktar gjafir í marga mánuði eftir að þeim hefur verið gefið þær. Merktir pennar, vatnsbrúsar og pokar eru lengi í notkun og minna fólk sífellt á viðkomandi fyrirtæki. Þannig aukast líkur á auknum viðskiptum

Commenting: OFF

Sérmerktar vörur, langtíma auglýsing

Merktar auglýsingavörur eru góð leið til að kynna vörumerki með ódýrum hætti og festa það í hugum fólks. Því meira sem þú sérð vörumerkinu bregða fyrir því betur manstu eftir því. Samkvæmt erlendum rannsóknum eru 83% þeirra sem fá gjafir merktar tilteknu fyrirtæki liklegri til að skipta við fyrirtækið í framhaldi. Sérmerktar vörur lifa lengur en sumt annað auglýsingaefni t.d er fólk að nota merkta poka að meðaltali í 7 mánuði, penna í 6 mánuði og drykkjarbrúsa í 7 og hálfan mánuð. Continue Reading

Auglýsingavörur dreifast með fólki

Sérmerktar auglýsingavörur kynna fyrirtækið með hagkvæmu hætti. Þær dreifast með fólki og vörumerkið sést víða. Pennar, pokar, drykkjarflöskur, nótubækur og postitblokkir  eru dæmi um vörur sem hægt er að nota á þennan hátt.
Commenting: OFF
Show More Posts